InPen

InPen er fjölnota insúlínpenni fyrir áfyllingarhylki af NovoRapid og Fiasp. Appið inniheldur skammtareikni sem áætlar fyrir þig insúlín fyrir máltíðir ásamt leiðréttingu ef við á.

Inpen appið talar við Guardian 4 forritið og sækir sykurnema gildi þaðan til að nota til áætlunar.

Gögn hlaðast upp í Carelink svo notandi eða heilbrigðisstarfsmaður viðkomandi geti skoðað hvernig hefur gengið og komið með ráðleggingar um breytta meðferð ef við á.

Appið fylgist með og passar uppá að ekki sé verið að ofhlaða insúlíni sem gæti leitt til lækkaðs blóðsykurs. Viðvaranir eru gefnar ef insúlínið verður fyrir hitastigsbreytingum eða aldur þess er orðinn 30 daga frá því það var tekið í notkun.

Endingatími rafhlöðu hvers penna er 1 ár og er honum skipt út af AZ Medica þegar við á.