MiniMed 780G Insúlíndæla

Fyrsta sinnar tegundar í meðferð á Sykursýki.

Kerfið aðlagar sjálfvirkt insúlíngjöfina á 5 mín fresti byggt á blóðsykrinum hverju sinni. Þú þarft einfaldlega að setja inn kolvetnin áður en þú borðar og bregðast við fyrirmælum frá dælunni.

Lifðu meira í núinu

MiniMed 780G kerfið með SmartGuard sjálfvirkri insúlíngjöf gefur þér frelsi til að hugsa minna um sykursýkina. Kerfið hugsar um þig til þess að þú getir einbeitt þér að verkefnum dagsins.

Einfaldar þér lífið í tengslum við íþróttir og hreyfingu

MiniMed 780G krefið hjálpar þér að draga úr truflunum tengdum sykursýkinni þegar þú stundar íþróttir og hreyfingu. Kerfið aðlagar sjálfkrafa insúlíngjöfina til þess að þú lendir síður í lækkuðum blóðsykri á meðan á hreyfingu stendur og einnig eftir hreyfingu.

Guardian 4

Samfelld sykurmæling mælir sykurinn allan sólarhringinn með litlum sykurnema sem liggur undir húðinni, gögnin uppfærast í Guardian appinu, eða í insúlíndælunni og MinMed Mobile appinu á 5 mínútna fresti . Mælingin kemur frá millifrumavökvanum sem er vökvinn á milli frumnanna í líkamanum.

Ef þú sérð ekki heildarmyndina þá getur verið erfitt að taka upplýstar ákvarðanir, það sama á við um sykurgildin þín.

Sykurnemagögnin sýna þér betur sveiflurnar og hvert sykurinn er að stefna hverju sinni.

Samkvæmt rannsóknum náðu 3x fleiri sykurnema notendur HbA1c gildum undir 7,5% eða 58 mmól/mól og 14,5% notenda náðu meiri tíma innan marka (3,9-10 mmól/L).

Þú getur nýtt þér samfellda sykurmælingu á mismunandi vegu, með insúlíndælu og á pennamðferð með einota eða fjölnota pennum.

MiniMed Mobile

Með 780G dælunni kemur app sem leyfir þér að fylgjast með blóðsykrinum og gefur þér tilkynningar þegar við á. Einnig er hægt að sjá gildi úr appinu í Apple Watch

Carelink Connect

Þú getur deilt upplýsingunum þínum áfram til aðstandenda með appinu Carelink Connect og þeir geta fylgst með og fengið viðvaranir við til dæmis lágan blóðsykur.

Slöngusett og forðahylki

Fyrsta og eina slöngusettið og forðahylkið sem er hannað fyrir lengri notkun án þess að draga úr þægindum eða öryggi insúlíngjafar

Extended slöngusett 7 dagar

Extended slöngusettið má nota í allt að 7 daga. 

Nálin er falin í skothylkinu og uppsetningin er mjög einföld.

90° 6 og 9mm mjúkur plastleggur.

Extended forðahylki 7 dagar

Extended forðahylki fyrir insúlín 3ML

Heilmilt er að nota Extended forðahylki í allt að 7 daga.