Gæðastefna

•Það er stefna AZ Medica ehf. að þjónusta viðskiptavini á sem hagkvæmastan hátt með markvissri gæðastefnu.
•Við leggjum hart að okkur til að vörur og þjónusta uppfylli ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina í gæðum og virkni.
•Að vinna stöðugt að framförum, nýjungum og hagkvæmni í rekstri.
•Að tryggja hæfni, getu og þekkingu starfsmanna til að sinna verkefnum sínum á fullnægjandi hátt.
•Stjórnskipulag fyrirtækisins miðast við að samskipti og tengsl við viðskiptavini séu skilvirk og jákvæð.
•Að fylgjast með og mæla reglulega ánægju viðskiptavina.
•Gæta að starfsemin uppfylli ávallt þær opinberu kröfur sem gilda um rekstur fyrirtækisins hverju sinni.
•Að reka virkt gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 og vinna stöðugt að umbótum á því kerfi.